Skíðaævintýri í Ölpunum 2027
Freyja Travel býður upp á einstakar vikulanga skíðaferðir til alparbæjarins Neukirchen am Grossvenediger, þar sem við njótum bæði frábærs skíðasvæðis og fyrsta flokks gistingar, og okkar uppáhalds hóteli, Hotel Kammerlander!
Skíðaævintýri í Ölpunum 2027
Freyja Travel býður upp á einstakar vikulanga skíðaferðir til alparbæjarins Neukirchen am Grossvenediger, þar sem við njótum bæði frábærs skíðasvæðis og fyrsta flokks gistingar, og okkar uppáhalds hóteli, Hotel Kammerlander!
Dagsetningar
Frá
23. janúar 2027
til
30. janúar 2027
Frá
409,900 ISK
Frá
27. febrúar 2027
til
6. mars 2027
Frá
409,900 ISK
Ferðapakki og verð:
Fullkomin blanda af skíðastemningu, lúxus og góðum félagsskap!
INNIFALIÐ Í VERÐI:
- Flug til og frá München
- Rútur til og frá Neukirchen
- 7 nætur á Hotel Kammerlander
- Hálft fæði
- Aðgengi að spa, sundlaug, sauna og gufuböðum
- 6 daga lyftupassi á Wildkogel
- Fararstjórn og aðstoð allan tímann
Hotel Kammerlander er algjör perla ✨
Glæsilegur matur, notaleg herbergi, fallegt spa-svæði og splunkuný líkamsrækt. Fullkomið að slaka á eftir góðan dag í fjallinu.
VERÐ:
409.900 kr. á mann m.v. tvo í herbergi
STAÐFESTINGARGJALD:
50.000 kr. óafturkræft staðfestingargjald á Freyja Travel:
- Kennitala: 650406-2140
- Banki: 370-26-039638
Skráning og upplýsingar á klara@freyjatravel.is
Takmarkað pláss í hverja ferð!



Frekari upplýsingar:
Dásamlega Hotel Kammerlander í hjarta þorpsins
Hægt er að renna sér frá bílastæðinu niður í kláfinn eða ganga innan við 5 mínútur
Hálft fæði: dýrindis morgunverðarhlaðborð & 3ja rétta kvöldverður + hlaðborð með forréttum, salötum, ostum og eftirréttum
Frábær aðstaða með
- saunum, gufubaði, sundlaug og slökunarsvæði bæði innan- og utandyra
- Nýleg líkamsrækt
- Náttsloppar og handklæði til afnota í heilsulind
Innifalinn 6 daga lyftupassi á Wildkogel Arena skíðasvæðinu
Fjölbreytt og notendavænt svæði fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna, auk þess sem áhugasömum býðst skíðasafarí í einn dag á annaðhvort Kitzbühel eða Zillertal Arena 🏔️
Sleðaævintýri og skíðasafarí
Skíðasafarí fyrir ævintýragjarna: einn dagur á Kitzbühel eða Zillertal Arena (aukakostnaður fyrir skíðapassa, ca. €70).
Við rennum okkur á lengstu upplýstu sleðabraut í heimi sem er heilir 14 km á lengd. Þetta er fullkomin leið til að sjá meira af svæðinu og upplifa ævintýri utan hefðbundinna skíðabrauta.



Spurt og svarað
Þú hefur samband við okkur með því að senda tölvupóst á info@freyjatravel.is eða fylla út formið neðst á síðunni. Við höfum samband og aðstoðum þig við að setja saman draumaferðina.
Skíðakennsla er í boði fyrir alla, frá byrjendum til reyndra skíðamanna, og er veitt af reyndum kennurum. Skíðakennslan er valfrjáls og hægt er að þiggja hana í allt að 5 daga eftir þörfum og óskum hvers og eins.
Skíðasafaríið er sérstök dagferð þar sem heimsótt eru mismunandi skíðasvæði í nágrenninu. Þetta gefur þér tækifæri til að upplifa fjölbreyttari skíðabrekkur og kynnast svæðinu betur. Ferðin er fullkomlega skipulögð og leiðsögð af íslenskum leiðsögumanni.
Já, gestir geta valið hvort þeir vilja prófa nýjasta skíðabúnaðinn sem er í boði til leigu. Við tryggjum að allir fái búnað sem hentar þeirra getu og reynslu.
Verðið á skíðaferðinni til Neukirchen am Grossvenediger inniheldur hálft fæði, þar á meðal morgunverðarhlaðborð og kvöldverð þar sem hægt er að velja úr þremur mismunandi aðalréttum. Einnig er boðið upp á fjölbreytt og glæsilegt forrétta- og salathlaðborð, auk úrvals eftirrétta.
Umsagnir Viðskiptavina
Hafðu samband
Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skilaðu inn á eyðublaðið, við hjálpum þér að finna ferð fyrir þig!