Hjólaferð í austurrísku Ölpunum 5.-12 september
Komdu með í hjólaferð í austurrísku Ölpunum 5. til 12. september og upplifðu stórbrotna náttúru austurrísku Alpanna á einstökum árstíma þegar haustlitirnir byrja að taka yfir landslagið, loftið er tært og hitastigið fullkomið til útivistar.
Hjólaferð í austurrísku Ölpunum 5.-12 september
Komdu með í hjólaferð í austurrísku Ölpunum 5. til 12. september og upplifðu stórbrotna náttúru austurrísku Alpanna á einstökum árstíma þegar haustlitirnir byrja að taka yfir landslagið, loftið er tært og hitastigið fullkomið til útivistar.
Dagsetningar
Frá
5. september 2026
til
12. september 2026
Frá
439,000 ISK
Ferð sem hentar öllum!
Þessi ferð er sérstaklega hönnuð fyrir miðlungs hjólara sem vilja njóta hreyfingar, náttúru og upplifunar – án þess að ferðin sé keppnis- eða „hardcore“ hjólaferð.
Hjólað er á fulldempuðum rafmagnsfjallahjólum um dali, fjallaslóða, fossasvæði og alpaengjar. Á leiðinni eru regluleg stopp á fjallaskálum þar sem hægt er að njóta útsýnis og notalegra máltíða.
Helstu hjólaleiðir:
- Wildkogel svæðið
- Krimmler Achental
- Wildgerlostal
- Trattenbachtal
- Obersulzbachtal
…og fleiri ótrúleg svæði í Hohe Tauern Ölpunum.
Ferðin hentar einnig vel pörum og vinahópum þar sem ekki er nauðsynlegt að hjóla alla daga. Boðið er upp á gönguferðir og aðra útivist fyrir þá sem vilja njóta svæðisins á annan hátt.



Hvað er innifalið í verðinu?
Innifalið:
- Flug með Icelandair til München
- Transfer til og frá Neukirchen
- Leiga á rafmagnsfjallahjóli í 6 daga
- Dagleg yfirferð og þjónusta á hjólum
- Gisting með fullu fæði
- Spa- og saunaaðstaða
- Íslensk fararstjórn
- Allir skattar og gjöld
Gisting:
Dvalið er á Hotel Kammerlander, einu vinsælasta hóteli svæðisins. Þar er boðið upp á rúmgóð herbergi, glæsilegt spa-svæði, sauna, bar og hlýlegt andrúmsloft. Drykkir eru innifaldir til kl. 20 á kvöldin og maturinn á hótelinu hefur fengið einstaklega góðar umsagnir frá fyrri hópum.
Þetta er ferð fyrir þau sem vilja hreyfingu, ferskt alpaloft, góða stemningu og alvöru upplifun – án stress og pressu.
Takmörkuð sæti í boði og þegar byrjað að bóka. Sendu skilaboð á klara@freyjatravel.is ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða til að tryggja þér sæti.



Hafðu samband
Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða skilaðu inn á eyðublaðið, við hjálpum þér að finna ferð fyrir þig!